9. August 2011
gnarr
Að "þjappa" SSD - míní grein

Ég rakst á þessa stillingu í dag þegar ég var að fikta í tölvunni minni og fór að velta því fyrir mér hvort það gæti mögulega verið sniðugt að nota "Full disk" þjöppun á SSD drifum til að geta troðið örlítið meira af gögnum á þessi rándýru drif.

3. June 2011
Yank
The Silencio 550: Ef þú skildir þarfnast þagnar

Fréttatilkynning frá CM: (virkilega lausleg þýðing)
Blandaðu saman styrkleika, stíl, og hljóðleika og útkoman verður Silencio 550. Cooler Master Silencio 550 er hannaður með það að markmiði að hýsa öflugan vélbúnað, á hljóðlátan hátt.

11. February 2011
Yank
Cooler Master Silent Pro Gold 600W aflgjafi review

Gull hefur fylgt manninum í þúsundir ára. Gull hefur verið notað sem gjaldmiðill, í skartgripi, og aðra dýrgripi. Þeir kostir gulls að vera góður leiðir fyrir rafmagn og verjast oxun betur en margir aðrir málmar gerir gull eftirsóknarvert í iðnaði. Þessir tveir eiginleikar gera það að verkum að gull er ákjósanlegur málmur til þess að nota í framleiðslu aflgjafa. Sá aflgjafi sem hér verður fjallað um er kenndur við gull enda tilheyrir hann gull aflgjafa línu Cooler Master.

2. February 2011
Yank
Fréttatilkynning frá GIGABYTE varðandi Sandy bridge gallann

Frá GIGABYTE
Kæri viðskiptavinur
Við erum að skoða sérstaklega vandamálið sem upp hefur komið með Sandy Bridge kubbasettið. Við höfum stöðvað dreifingu á Sandy Bridge móðurborðum þar til við höfum fengið nægjanlegar upplýsingar frá Intel. Við erum í nánu sambandi við Intel til þess að vinna bug á þessu vandamáli. Eftir því sem við best vitum þá munu að hámarki 5% móðurborða búnu Sandy bridge kubbasettinu mögulega verða fyrir þessu vandamáli.

1. February 2011
Alli_Ofur
Hönnunargalli í Intel P67 kubbasettinu.

Nú hefur komið í ljós að það er hönnunargalli í nýja P67 kubbasettinu frá Intel.
Gallinnn lýsir sér þannig að SATA 2 stýringin í kubbasettinu hættir að virka rétt eftir ákveðið margar hitabreytingar frá heitu yfir í kalt á móðurborðinu.
Ljósi punkturinn við þetta, er að gallinn virðist ekki hafa nein áhrif á SATA 3 stýringuna sem styður líka SATA 2 diska.
Vandamálið er því hægt að forðast með því að nota eingöngu SATA 3 portin á móðurborðum með Intel P67 kubbasettinu.
Þetta ætti ekki að verða mikið vandamál fyrir marga, en þeir sem nota marga diska hafa takmörkuð SATA 3 tengi sem er mismunandi eftir móðurborðum.

1. February 2011
Yank
Nýtt heimsmet með hjálp GIGABYTE P67 móðurborð

"Fréttatilkynning frá Gigabyte"
"Mat" hefur sett nýtt heimsmet með Intel i7 2600K örgjörva, GIGABYTE P67 móðurborði og Corsair Dominator minni.
Hamborg, 31-01-2011: Yfirklukkarinn "Mat" á vefsíðunni Overclokers.at hefur sett nýtt heimsmet einungis tveim vikum eftir útkomu móðurborða sem styðja Sandy bridge örgjörvann. Hann náði 2594,4 stigum í MaxxMem með minnið á 2172 MHz stillt á tímann CL6-6-6-21 1T og örgjörvann yfirklukkaðan í 5,6 GHz .

28. January 2011
Alli_Ofur
Stærð Móðurborðsframleiðenda 2010

Núna er búið að taka saman sölutölur móðurborðsframleiðenda árið 2010.

Asus seldi 21,6 milljónir móðurborða og kom í fyrsta sæti.
Gigabyte seldi 18 milljón borð fyrir annað sæti.
AsRock náði í þriðja sæti með 8 milljón borð seld.

MSI náði 4 sæti með 7 milljónir seldra borða.
ECS nær í 5 sæti með um 7 milljónir seldra borða en mikið af því er selt undir merkjum HP.
Biostar í 6 sæti hefur vaxið mikið eftir að Foxconn hætti í PC borðum og selur nú um 5 milljón borð á ári.

20. January 2011
Yank
CM kynnir til sögunar Turbine Master viftuna

"Fréttatilkynning frá CM"
Hin "óbrjótanlega regla" hefur verið brotin. Cooler Master Turbine Master er nýjasta 120mm vifta fyrirtækisins sem brýtur regluna öflug vifta = hávær vifta. Eða "high air flow fan = loud". Hönnuð með túrbúnu sem fyrir mynd hefur Turbine Master mikla blástursgetu án hávaðamyndunar.

20. January 2011
Yank
Intel tilkynnir met hagnað á árinu 2010

SANTA CLARA, Calif. 13. jan 2011. Intel tilkynnir um hagnað upp á $43.6 milljarða á árinu 2010, sem er 24% meira en árið á undan. Fyrir síðasta fjórðung ársins 2010 tilkynnir Intel hagnað upp á $11.5 milljarða. Að sögn Intel er árið 2010 besta ár Intel til þessa, og stjórnendur Intel vilja meina að 2011 verði enn betra.

6. January 2011
Yank
GIGABYTE með fyrsta DirectX 11 MINI-ITX móðurborðið

"Fréttatilkynning frá GIGABYTE"
GIGABYTE, leiðandi framleiðandi móðurborða, grafískra skjákorta og annars tölvubúnaðar er stolt af því að kynna til sögunar Mini-ITX móðurborðið GA-E35N-USB3, sem fyrsta móðurborðið af þessari stærð byggt á AMD Fusion™ og suðningi við DirextX 11. Móðurborðið skartar DirectX® 11 stuðningi, SuperSpeed USB (USB 3.0), HDMI, SATA 6Gbps, HDMI tengimöguleika, Ultra Duarble™ 3 Classic, 3x USB Power and On/off hleðslu svo auðvelt sé að hlaða iPad, iPhone, og iPod Touch tæki ásamt fleiru góðgæti.