Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverju..?

Hvað ættirðu að fá þér næst?

Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverju..?

Sendaaf GGG á Mán 11. Ágúst 2008 10:32

Jæja þá er komið að því, ég skrapp upp í tölvuvirkni og skoðaði 22" BenQ skjáinn sem ég er búinn að vera að spá lengi í,
og eftir að hafa talað við einhvern hjá þeim ákvað ég að uppfæra bara tölvuna líka.
Mig vantar álit á þessu:

Er ekki best að kaupa allt á einum stað, og eru þá tölvuvirkni bestir ?

Endilega bendið mér á ef þetta er ekki málið, er hægt að gera betur fyrir þennann pening :?:

Og ef það eru einhverjir hlutir sem ég ætti ekki að kaupa eða sem passa ekki,
eins og td. móðurborðið, ég er ekki viss með það, en vinur minn bennti mér á það..?

So, hér er það sem ég er að spá í að kaupa:

Örgjöfi: Intel Core2 Duo E8400 3.00GHz,1333MHz
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... ntel_E8400
Kr. 17.860

Móðurborð: Intel - 775 - Asus P5K Pro P35
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... us_P5K_Pro
Kr. 14.860

Vinnsluminni: DDR2 Minni 1066 MHz - G.SKILL Twinpacks 4096MB CL5 2x2048
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... S_4Gb_1066
Kr. 17.860

Skjákort: PCI-E - ATI - Jetway HD4850 512MB DDR3 PCI-E
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... _JW_HD4850
Kr. 20.860

Harður Diskur: 3.5" - SATA - Western Digital Raptor 150GB 10K RPM
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... PTOR_150GB
Kr. 16.860

Stýrikerfi: Windows Vista Home Premium 64-bita OEM

http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... sta64HomeP
Kr. 13.900

Skjár: 22 Tommu BenQ T221W Widescreen Analog/DVI
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... BenQ_T221W
Kr. 26.860

Þjónusta: Samsetning og Uppsetning á Tölvu
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... SAM_og_Upp
Kr. 8.860

Aflgjafi: 600W - Tagan BZ PipeRock Series Modular
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... W_TG600-BZ
Kr. 13.860

Samtals: 151.780 kr

Hlakka til að heyra hvað ykkur finnst.
GGG
 
Innlegg: 2
Skráði sig: Mán 11. Ágúst 2008 10:30

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverju..?

Sendaaf Stutturdreki á Mán 11. Ágúst 2008 12:44

Lítur ágætlega út, nokkurn vegin það sama og ég myndi kaupa mér sjálfur. Spurning með að skoða 4870 samt ef þú ert leikjanörd og X38 móðurborð ef þú vilt hafa option um að bæta við öðru korti seinna, tvö 4850 í crossfire á X38 móðurborði eru samt nokkuð öflug.

Varðandi að kaupa allt á sama stað, ekkert endilega, Tölvuvirkni eru þó með góð verð og gott vöruúrval. Persónulega finnst mér td. mest sexý minnið hjá Kísildal. Maður er yfirleitt að eltast við verð og/eða ákveðin merki/vöru.
Einkennismynd notanda
Stutturdreki
 
Innlegg: 545
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 22:53

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverju..?

Sendaaf Yank á Mán 11. Ágúst 2008 13:29

Er ekkert sem ég myndi segja ekki kaupa! enda þéttur pakki. En hér eru nokkrir punktar.

WD raptor 150 GB er dýr hávaðasamur lítill diskur en nokkuð fljótur en þú verður lítið var við þann hraða dags daglega m.v. t.d. hefðbundna diska. Þú gætir einnig tekið ódýrara Asus P35 borðið sem Tölvuvirkni er með og ódýrari 500 GB HD og ert þá kominn með mismun sem gæti dugar langleiðina uppí 24" skjá sem er meiri fengur en 22"

Tölvuvirkni hafa margsannað það fyrir mér að vera mjög traustur söluaðili vélbúnaðar.
En það sakar ekki að senda tölvupóst á t.d. Kísildal, Tölvutækni, Att, START (er eflaust að gleyma einhverjum) og spyrja hvað þeir geta boðið þér á þessu verðbili.
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1226
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverju..?

Sendaaf GGG á Mán 11. Ágúst 2008 13:31

En það sakar ekki að senda tölvupóst á t.d. Kísildal, Tölvutækni, Att, START (er eflaust að gleyma einhverjum) og spyrja hvað þeir geta boðið þér á þessu verðbili.

Fín hugmynd, kannski að maður prófi það.

WD raptor 150 GB er dýr hávaðasamur lítill diskur en nokkuð fljótur en þú verður lítið var við þann hraða dags daglega m.v. t.d. hefðbundna diska. Þú gætir einnig tekið ódýrara Asus P35 borðið sem Tölvuvirkni er með og ódýrari 500 GB HD og ert þá kominn með mismun sem gæti dugar langleiðina uppí 24" skjá sem er meiri fengur en 22"

Eitthvað sem ég verð að skoða :)

Einhverjar fleiri ábendingar.
GGG
 
Innlegg: 2
Skráði sig: Mán 11. Ágúst 2008 10:30

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverju..?

Sendaaf Skywalker á Mán 02. Mars 2009 15:51

Ég get ekki verið sammála að WD Raptor 150GB sé hávær nema þú sért að tala um þegar hann er að vinna.
Maður vill auðvitað heyra í velaraflinu þegar það gefur í ;)
Einkennismynd notanda
Skywalker
 
Innlegg: 831
Skráði sig: Sun 10. Júní 2007 16:21

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverju..?

Sendaaf Yank á Mán 02. Mars 2009 20:32

Þetta er gamall þráður.

Shitt hvað verðinn hafa breyst.....
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1226
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverj

Sendaaf Aravil á Mið 30. Júní 2010 10:27

Yank skrifaði:Þetta er gamall þráður.

Shitt hvað verðinn hafa breyst.....


Afsakið að ég sé að vekja gamlann þráð, en ansi magnað að næstum 2 árum seinna er veriðið á E8400 farið upp um rúm 60% :/
Aravil
 
Innlegg: 1
Skráði sig: Mán 30. Nóvember 2009 16:23

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverj

Sendaaf beatmaster á Mið 30. Júní 2010 10:57

Voruð þið nokkuð búnir að gleyma 6 Október 2008?
AMD Phenom II X4 955BE, Asrock A770DE+, 4096MB OCZ Gold DDR2 1066 CL5, MSI ATI Radeon R4870 OC Pakkað saman inn í Coolermaster Sileo 500 ásamt Cooler Master Silent Pro 850W PSU
Einkennismynd notanda
beatmaster
 
Innlegg: 232
Skráði sig: Lau 09. Júní 2007 12:23
Staðsetning: Error 404 No Location found

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverj

Sendaaf Yank á Mið 30. Júní 2010 16:14

Aravil skrifaði:
Yank skrifaði:Þetta er gamall þráður.

Shitt hvað verðinn hafa breyst.....


Afsakið að ég sé að vekja gamlann þráð, en ansi magnað að næstum 2 árum seinna er veriðið á E8400 farið upp um rúm 60% :/


Ekkert af því að vekja gamlan þráð ef umræðan er af viti, þetta er jú spjall :)

Það er oft þannig að verðin á örgjörvum sem passa á eldri örgjörvasökkla (775) hanga há enda innkaupsverðin gömul. Þú færð betri örgjörva á svipuðu verði á AM3 og 1156 örgjörvasökkla.
Þetta á einnig við um annan búnað eins og DDR2 svo ekki sé talað um DDR minni sem hangir hátt í verði.

En upp um 60% eru tímar sem við þurfum vonandi ekki að lifa aftur, spurning um að skrifa þakkarbréf til nokkra aðila á sama tíma og maður skrifar til hjálparsveitanna ;)
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1226
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Uppfærsla: Hvað finnst ykkur, ætti ég að breyta einhverj

Sendaaf jericho á Mið 30. Júní 2010 16:38

vÁÁÁÁÁ hvað það er langt síðan ég pældi eitthvað í uppfærslum á tölvunni minni (sem er síðan 2008 meira og minna, fyrir utan skjákort).

ég las þráðinn rétt áðan og var bara: "jeeee, þetta er heví sjitt vél"

svo las ég lengra og sá að einhverjum datt í hug að vekja upp gamlan þráð :oops:

verð að viðurkenna að i'm getting too old for this sh*t
Einkennismynd notanda
jericho
 
Innlegg: 21
Skráði sig: Þri 06. Október 2009 16:44


Fara aftur á Uppfærslur

Hverjir eru tengdir

Notendur að skoða þetta spjallborð: Engir skráðir notendur og 0 gestir

cron