album® Stafrænt myndaalbúm pínu Review

album® Stafrænt myndaalbúm pínu Review

Sendaaf Yank á Fim 17. Júní 2010 00:06

Flestir sem taka myndir hafa ánægju af því að sýna þær. Það á jafnt um hvort það séu myndir úr sumarfríinu eða myndir af börnunum. Þægilegt er að sýna myndir í gegnum netið með hjálp netsíða sem gera notenda kleyft að vista myndir sínar án endurgjalds. En maður er ekki alltaf nettengdur og sumir vinnustaðir eru farnir að hefta aðgang að slíkum síðum. Þá er einungis það til ráða að penta út myndirnar á pappír á hefðbundin hátt og taka með sér, eða notast við stafrænt myndaalbúm.
>>>
Kostir stafræns myndaalbúms umfram hefðbundið myndaalbúm eru fjölmargir. Sá helsti er að hægt er að vista gífurlegan fjölda mynda á slíkra græju, klárlega fleiri en maður myndi prenta út eða láta framkalla og bera síðan á sér daglega.

Mynd

Það stafræna myndaalbúm (album®) sem hér verður prófað var keypt af höfundi í versluninni Fotoval.
>>>
Kassi og fylgihlutir

Mynd

Kassinn utan um album® komu mér á óvart, enda fylgja hér sennilega fleiri myndir af honum heldur en góðu hófi gegnir. Kassinn er úr frauðplasti, vel fer um innihaldið og það er vel varið í kassanum.

Mynd

Mynd

Mynd

Fylgihlutir
• Leiðbeiningabæklingur, enska, franska,þýska, ítalska, spænska, portúgalska, finnska, danska, sænska, ofl tungumálum.
• Skiptanleg rafmagnskló fyrir innstungur mismunandi rafmagnskerfa allra helstu landa.
• USB snúra.
• Leðurhlíf.

Mynd

Mynd
>>>
Nánar um album®

Mynd

album® stafræna myndaalbúmið er búið 7 tommu 800x480 díla skjá. Innra minnið er 4GB sem hægt er að auka í alls 20GB með því að bæta við 16GB SD minniskorti.

Hægt er að tengja album® með USB kaplinum við flestar gerðir myndavéla og lesa myndirnar beint af þeim. Einnig er hægt að lesa myndir beint af SD minniskorti eða tengja album® við tölvu og flytja myndir þannig á græjuna.

Umskiptanlegur rafmangstengill gerir það kleyft að hlaða album® í hvaða landi sem er. Rafhlöðuending er 3 klukkustundir.

Mynd

Hægt er að nota leðurhlífina til þess að láta album® standa á eigin spýtur og spila myndsýningu bæði undir eigin afli (rafhlöðu) eða tengdu rafmagni.

Mynd

Hægt er að smella leður hlífinni af með einu handtaki. Þetta er eitthvað sem ég áttaði mig ekki á fyrr en album® hafði skollið í gólfið úr 1,5 metra hæð. Leðurhlífin small af eftir að ég reyndi að taka það upp á leðrinu einu. Það er allavega á hreinu að album® þolir töluvert högg, því stafræna albúmið lenti beint á flísalagt gólfið án þess að illa færi.

Mynd
>>>
Pínu samantekt

album® stafræna myndaalbúmið er vönduð græja með mikið notagildi. Þú getur tekið það með þér og sýnt myndir af því á ferðinni, eða sett það upp heima hjá þér og notað sem stafrænan myndaramma.

Allir stafrænir myndarammar eða stafræn myndaalbúm standa og falla með gæðum skjásins, og það verður að segjast eins og er að 7“ skjár album® myndaalbúmsins er hreint út sagt frábær. Skýr, bjartur, og með góðum (réttum) litum.

Mynd

album® sleppur ekki við athugasemdir. Sú helsta er að háglans áferðin að framan veldur því að við hverja snertingu skilur þú eftir fingrafar, sem verður nokkuð auðsjáanlegt. Myndin hér að ofan sýnir þetta vonandi. Þessi ókostur að verða fljótlega útklíndur í sjáanlegum fingraförum er kjánalegur, fyrir græju sem þú munt rétta aðila til þess að hann geti skoðað myndirnar.

Stjórnun album® fer í gegnum þrjá hnappa sem staðsettir eru hægra megin á græjunni. Stjórnunin er einföld, en varla hægt að kalla hana ríkulega. Það eina sem ég sakna sérstaklega er að ekki er hægt að velja tilviljanakennda (random) röð myndasýningar.

Fyrir frábæran 7“ skjá, notagildi og hversu meðfærileg þessi græja er, fær album® tech.is meðmæli.



Copyright Yank 2010
Editor RISI (á eftir að lesa)
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1228
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: album® Stafrænt myndaalbúm pínu Review

Sendaaf Alli_Ofur á Fim 17. Júní 2010 12:43

Og pínu review lifa.

Flott græja þetta albúm, það væri ekki vitlaust að gera svona græju sem tæki SSD disk í rauf á hliðinni.
If you think that professionals are expensive, Just wait until you see what amateurs can cost you.

http://www.kisildalur.is/
Einkennismynd notanda
Alli_Ofur
 
Innlegg: 396
Skráði sig: Mið 06. Júní 2007 20:47
Staðsetning: Reykjavik

Re: album® Stafrænt myndaalbúm pínu Review

Sendaaf Yank á Fim 17. Júní 2010 21:05

Alli_Ofur skrifaði:Og pínu review lifa.

Flott græja þetta albúm, það væri ekki vitlaust að gera svona græju sem tæki SSD disk í rauf á hliðinni.


Ertu þá að tala um eSATA til þess að færa myndir á milli, eða bara sem endanleg geymsla?

Það eru náttúrulega til tæki sem taka hefðbundna mekaníska harðdiska, og þannig þess vegna SSD líka ef þú ert tilbúinn að skipta disknum sem kemru með út, eins og t.d. Epson P6000, en þær græjur eru frekar hugsaðar til ferðalaga, enda með mun minni skjá. En eftir að myndavélar fór að vera alment með 3" skjá og SD og CF kort urðu svona stór allt að 128GB eru slíkar græjur ekki eins nauðsynleg, hvorki til að skoða eða geyma myndir á ferðalögum. Svo eru náttúrulega allir með Laptop á ferðalögum.

Væri frekar til í wifi tengingu í svona græju.
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1228
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: album® Stafrænt myndaalbúm pínu Review

Sendaaf Skywalker á Fös 18. Júní 2010 14:45

Var mikil kvöl og pína að gera þetta? :lol:
Einkennismynd notanda
Skywalker
 
Innlegg: 832
Skráði sig: Sun 10. Júní 2007 16:21


Fara aftur á Geymslumiðlar

Hverjir eru tengdir

Notendur að skoða þetta spjallborð: Engir skráðir notendur og 0 gestir

cron