Corsair H50 örgjörvakæling Review

Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Yank á Fim 27. Maí 2010 00:54

Mín fyrstu kynni af vatnskælingu var árið 2003 þegar ég eignaðist Waterchill vatnskælingarsett frá danska fyrirtækinu Asetek. Þessi sett voru bylting á sínum tíma því þau komu fullbúinn frá framleiðanda, með öllu sem til þurfti, leiðslum, festingum, dælu, vatnsforðabúri, koparblokk fyrir örgjörva, kubbasett og skjákort. Einungis þurfti að setja kerfið saman í tölvukassanum og bæta á vatni. Það skal varlega farið í það hér að tala um að "einungis" hafi þurft að setja það saman, því að koma slíkri vatnskælingu fyrir í tölvukassa er ekki fyrir hvern sem er.
>>>
Mynd

Fyrstu vatnskælingarnar voru að mestu leyti heimasmíð. Fiskabúrs vatnsdæla keypt í næstu gæludýraverslun, slöngur úr plasti, vatnskassar úr vélhjóli, og blokk úr kopar til þess að leiða hitann frá örgjörvanum yfir í vatnið, annað hvort heimasmíðuð eða keypt. Vatnið á kælinguna kom úr krananum, en oftast bætt í það lausn til þess að draga úr gróður og bakteríumyndun. Það leið þó ekki að löngu þangað til hægt var að kaupa heilu vatnskælingasettin frá framleiðendum eins og Asetek (Waterchill). Þessi sett voru flest þannig að þau þurfti að setja saman inní tölvukassanum, en einnig er hægt að fá vatnskælingar þar sem vatnskassinn er staðsettur utan við kassann.

Mynd

Ef maður spyrst fyrir um vatnskælingu í verslun á Íslandi í dag er algengt að fá það svar að slíkt sé ekki til. Ástæðan er líklega sú að eftirspurnin hefur minnkað, en einnig að margar verslanir hafa brennt sig á því að selja slíkar kælingar í gegnum tíðina. Lekar úr vatnskælingu yfir rándýran vélbúnað og skemmdir sem geta hlotist af því er eitthvað sem þó nokkrir hafa brennt sig á. Slíkar skemmdir falla ekki endilega undir ábyrgð og það er eðlilega gremjulegt fyrir kaupandann og veldur óánægju. Flestar verslanir eru því tregar til þess að bjóða upp á vatnskælingar. Þessi saga er ekkert séríslensk og það hljómar því ekki undarlega að heyra það að hið danska fyrirtæki Asetek hafi liðið undir lok og hætt að framleiða vatnskælingar, og frystikælingar (Waterchill, Vapochill) í neytanda umbúðum.

Mynd

Sú vatnskæling Corsair H50 sem hér verður tekin til kostanna er markaðssett af Corsair en í raun hönnuð af fyrirtæki sem er engin nýgræðingur á þessu sviði nefnilega Asetek. Asetek hefur endurskipulagt starfsemi sína og flutt vestur um haf. Asetek selur í dag framleiðslu sína einungis til annarra fyrirtækja til markaðssetningar en ekki einstaklinga.

Corsair H50 vatnskæling sem hér er prófuð var keypt af höfundi þessarar greinar.

Aðeins um Corsair

Corsair hefur verið leiðandi í hönnun og framleiðslu á hágæða minni allt síðan 1994. Það er því eðlilegt að það fyrsta sem manni detti í hug þegar maður sér nafnið Corsair sé minniskubbur. Corsair hefur í gegnum árin aukið á úrvalið og það samansendur í dag, m.a. af: minniskubbum, USB minniskubbum, aflgjöfum, tölvukössum, og vatnskælingu.
>>>
Kassi og fylgihlutir

Umbúðir Corsair H50 vatnskælingarinnar eru snyrtilega og fágaðar í útliti. Öllu innihaldi er haganlega komið fyrir, þannig ansi mikið þarf að ganga á í flutningum til þess að skemma innihaldið.

Mynd

Mynd

Mynd

Fylgihlutir:

• 120mm vifta
• Festingar fyrir LGA1366/775/1156 AMD AM2/AM3
• Leiðbeiningabæklingur

Mynd
>>>
Nánar um Corsair H50

Corsair H50 er vatnskæling úr áli, kopar og plasti sem passar á alla helstu örgjörvasökkla sem eru í framleiðslu í dag, Intel LGA 1366/1156/775 og AMD AM3 og AM2. Corsair H50 vatnskælingin hefur nægjanlega kæligetu til þess að kæla alla örgjörva sem passa á þessa örgjörvasökkla frá þeim veikustu til þeirra allra öflugustu. Corsair H50 er fyrirfram fyllt með vökva, og kemur sem algjörlega lokað kerfi með innbyggðri dælu. Ekki þarf að skipta um vökva kerfisins eða hugsa um frekara viðhald.

Mynd

Um leið og maður handfjatlar Corsair H50 virkar vatnskælingin sem vönduð smíð, enda þótt hún beri vörumerki Corsair á hún uppruna sinn hjá fyrirtæki með mikla þekkingu á hönnun og smíði slíkra kælinga. Þetta fyrirtæki er að sjálfsögðu Asetek en þeir sem þekkja til vatnskælinga muna eflaust eftir Waterchill og Vapochill kælingunum. Vörumerki Asetek má finna á Corsair H50 vatnskælingunni sjálfri og kassanum. Asetek er hætt að markaðssetja vörur til neytanda en selur þær í staðin til svokallaðar OEM (original equipment manufacturer, frumframleiðandi) framleiðanda eins og Corsair.

Mynd

Corsair H50 lofar mikilli kæligetu umfram það sem hefðbundnar viftu loftkælingar hafa. Ástæðan fyrir skilvirkari kæligetu vatnskælingar liggur m.a.í varmarýmd vatns og hversu auðvelt er að flytja þann varma í burt. Koparblokk leiðir varma frá örgjörvanum yfir í vatnið sem síðan er dælt í vatnskassa sem kældur er með viftu. Stöðug hringrás er á vatninu frá koparblokkinni sem liggur yfir örgjörvanum yfir í vatnkassann, virkar í raun ekki ósvipað og kæling bílvélar.

Mynd

Corsair H50 fær afl úr tveimur 3-pin rafmagnstengjum sem hægt er að tengja við móðurborðið. Kælingin þarf því lítið meira afl en hefðbundin örgjörvakæling en annað þessara 3-pin tengja tilheyrir 120mm viftunni. Hægt er að notast við tvær 120mm viftu önnur blæs inní vatnskassann en hin sýgur út og það eykur kæligetu frekar.

Mynd
>>>
Samsetning

Fyrir gamlan ref í þessu eins og mig þá er samsetning á Corsair H50 mjög einföld, og í raun ekkert flóknari heldur en að koma öðrum mjög öflugum viftukælingum fyrir. Corsair hefur einnig gert sitt ýtrasta til þess að gera upplýsingar um framkvæmd sem aðgengilegastar m.a. með gerð myndbands þar sem fari er í gegnum samsetningu og með því að bjóða upp á hjálp í gegnum síma.

Mynd

Í einföldu máli fer uppsetning fram í þremur megin skrefum:

- Taka þarf móðurborðið úr kassanum til þess að koma festiplötu fyrir koparblokkina undir móðurborðinu.

Mynd

Mynd

- Vatnskassinn og viftan eru fest aftan á útblástursop kassans að aftan. Viftan er látin soga kalt loft að utan og blása því inn í kassann.

Mynd

- Koparblokkin með dælunni er fest ofan á örgjörvann með þar til gerðum festingum.

Mynd
>>>
Prófunarbúnaður

Móðurborð
ASUS P6T X58 Deluxe

Mynd

Minni

GeIL Ultra 6GB DDR3 PC3-12800 tími 7-7-7-24@1,65v lagt til af Kísildalur.is

Mynd

Örgjörvi

Intel® Core™ i7 920 retail

Mynd

Skjákort: MSI R4870 OC Edition

Mynd

Stýrikerfi: Vista Ultimate 32bit SP1

Skjár: Samsung SyncMaster 245BW

Geisladrif Sony OptiArc AD-5200 DVD+/- 20X SATA lagt til af http://www.tolvuvirkni.is

Mynd

HD: Segate Barracuda 7200rpm 500GB 32MB

Mynd

Aflgjafi: COOLER MASTER Real Power M620

Mynd
>>>
Kæligeta

Kæligeta Corsair H50 var borin saman við Cooler Master Hyper N520 með því að keyra stöðugleika próf Everest Ultimate á örgjörvann í eina klukkustund og við þann tímapunkt er hitastigið lesið. Hitastigið við ekkert (idle) álag var lesið af einni klukkustund eftir að að álagsprófinu (load) lauk. Herbergis hita var haldið við 21 gráðu á meðan á próf voru framkvæmd.

Til þess að krydda ástandið og reyna frekar á kæligetu búnaðarins var Intel Core i7 920 örgjörvinn yfirklukkaður í 3.6GHz. Búnaðurinn var einnig settur þannig upp að 120mm kæliviftan var bæði látin blása út úr kassanum að aftan og einnig sett upp á réttan hátt eða á þann hátt sem Corsair mælir með. Þ.e. blása loftin inn að aftan.

Mynd

Corsair H50 hefur mikla kæligetu og heldur Intel Core i7 920 nokkuð svölum þrátt fyrir nokkra yfirklukkun og mikið álag.
>>>
Hljóðmyndun

Hljóð var mælt með Velleman DVM 805 hljóðstyrksmælir annarsvegar í eins sentímetra fjarlægð frá kælingunni og hinsvegar í eins metra fjarlægð.

Mynd
>>>
Samantekt

Corsair H50 er öflug örgjörvakæling, hljóðlát, vönduð smíð og ekkert flóknari í uppsetningu en stórar og öflugar viftukælingarnar. Corsair H50 vatnskælinginn er sú fyrsta sem ég kynnist sem þarf ekkert viðhald, skipta um vatn, hreinsa slöngur o.s.fv, þetta er mikill kostur. Ef maður skoðar verð á allra öflugustu viftuörgjörvakælingunum sem fást hér á landi þá kemur Corsair H50 vel út úr samanburðinum þegar kemur að verði og kæligetu.

Corsair H50 sleppur ekki hér í gegnum skoðun án athugasemd. Helsta athugasemdin snýr að því að einungis sé hægt að staðsetja vatnskassann að aftan í kassanum og að snúa þurfi þeirri kassaviftu þannig að hún blási lofti inn í kassann. Flestir kassar í dag eru hannaðir þannig að þeir taka kalt loft inn að framan með hjálp viftu sem búinn er ryksíu og blása loftinu síðan út að aftan með viftu þar. Það virkar því ekki skynsamlegt að helsta útblástursvifta kassans sé sú vifta sem snúa þarf við til þess að kæla örgjörvann. Þótt búast megi við lækkuðu hitastigi á örgjörva eins og mælingarnar sýndu má búast við að hitastig á skjákorti og kubbasetti hækki ef heitt loft á ekki greiðan aðgang út úr kassanum. Einnig kallar þessi uppsetning á að ryk mun festast í kælielementum vatnskassans en slíkt er leiðinlegt að þrífa, Corsair hefði mátt láta ryksíu fylgja með. Það má vissulega snúa viftunni framan í kassanum á þann veg að hún blási lofti út, en ókosturinn við það er að þá blæs hún heitu lofti framan í notenda tölvunar ef hún er staðsett á borði.

Upphaflega hafði ég hugsað mér að setja vatnskassann á þar til gerðan stað fyrir vatnskælingar framan í Cooler Master CM 690II Advanced kassanum sem búnaðurinn var prófaður í, en sökum þess að slöngurnar milli kæliblokkarinnar/dælunnar og vatnskassans eru of stuttar þá gekk það ekki. Það verður sífellt algengara að kassar séu hannaðir með það í huga að koma vatnskælingu fyrir inn í þeim og það með vatnskassa sem er allt að 2x120mm að stærð. Algengast er að þessi staður sé framarlega og neðarlega í kassanum, en þangað ná slöngur Corsair H50 einfaldlega ekki. Enda er Corsair H50 vatnskælingin einungis hönnuð með það í huga að festa vatnskassann aftan í kassann þar sem klassískt er að staðsetja 120mm útblástursviftu

Flestir sem eru á annað borð að velta því fyrir sér að fjárfesta í svo öflugri kælingu munu væntanlega búa yfir þeirri kunnáttu sem þarf til þess að koma henni fyrir án teljandi vandræða. Uppsetning á Corsair H50 er ekkert erfiðari en uppsetning á öflugri viftukælingu. Einhverjir munu þó án efa lenda í vandræðum og það þrátt fyrir að Corsair hafi gert sitt ýtrasta til þess að tryggja að upplýsingar um framkvæmd séu sem aðgengilegastar og hjálp sé að fá með símtali. En eins og með allar „alvöru“ kælingar sem seldar eru í dag hvort sem þær eru viftukælingar eða annað þá þarf að fjarlægja móðurborðið til þess að koma Corsair H50 fyrir. Hvort uppsetning sé of flókin fyrir þig eða ekki verður þú að meta sjálfur eftir að hafa horft á eftirfarandi myndband frá Corsair.

http://www.youtube.com/watch?v=PUxoFiFuS_g



Fyrir að vera vönduð smíð, hafa mikla kæligetu, vera nokkuð hljóðlát og þrátt fyrir athugasemdirnar sem ég gerði hér að ofan er mjög vel hönnuð fær Corsair H50 tech.is meðmæli.



Copyright Yank 2009
Editor RISI
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1232
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Skywalker á Fim 27. Maí 2010 12:53

Mér finnst þetta ekkert skila spes árangri miðað við örgjörvakælinguna sem er ekki nema mid-range loftkæling.

Gæti verið að vatnskælingin sé að koma verr út vegna þess að það er heitara úti núna ?
Einkennismynd notanda
Skywalker
 
Innlegg: 832
Skráði sig: Sun 10. Júní 2007 16:21

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Stutturdreki á Fim 27. Maí 2010 12:58

Spurning með þetta lokaða kælikerfi hjá þeim, er varmaskiptirinn ekki frekar lítill?
Einkennismynd notanda
Stutturdreki
 
Innlegg: 545
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 22:53

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Yank á Fim 27. Maí 2010 21:37

Skywalker skrifaði:Mér finnst þetta ekkert skila spes árangri miðað við örgjörvakælinguna sem er ekki nema mid-range loftkæling.

Gæti verið að vatnskælingin sé að koma verr út vegna þess að það er heitara úti núna ?


Sama herbergishitastig við báðar mælingar. Mælingarnar voru heldur ekki framkvæmdar á þessum síðustu heitu dögum sem við höfum fengið í þessari viku.
Þú fullyrðir að Hyper N520 sé midrange en það er hún ekki, hún er öflugri en þú gefur henni credit fyrir. 4 gráður í mun við álag er nokkuð mikið, enda er ég sanfærður um að Corsair H50 hangi í öflugustu viftukælihlunkunum sem þú getur fengið og sé jafnvel betri eins og sum review hafa verið að fá út.
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1232
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Alli_Ofur á Fim 27. Maí 2010 21:43

Það er alveg fáránlegt að það sé ekki hægt að festa vatnskassann þannig að viftan blási út úr kassanum.

Ég hefði nú viljað sjá víðari mynd úr kassanum, svona til að sjá hvernig heildarmyndin lítur út.
Þú ert nú ekki þekktur fyrir að klikka á myndunum. ;)

Það hefði ekki verið verra ef þú hefðir tekið db mælinn á þetta líka, annars fín samantekt.
If you think that professionals are expensive, Just wait until you see what amateurs can cost you.

http://www.kisildalur.is/
Einkennismynd notanda
Alli_Ofur
 
Innlegg: 397
Skráði sig: Mið 06. Júní 2007 20:47
Staðsetning: Reykjavik

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Yank á Fim 27. Maí 2010 21:48

Stutturdreki skrifaði:Spurning með þetta lokaða kælikerfi hjá þeim, er varmaskiptirinn ekki frekar lítill?


Þú átt þá við að vatnskassinn sé lítil og það að hafa dæluna innbyggða í allt dragi úr afköstum?
Það má vel vera að hafa þetta allt svona sambyggt dragi úr afköstum, þ.e. varmi frá dælunni osfv.
Líklega mun stærri vatnskassi ekki skila miklu en ég man eftir að hafa lesið rannsókn einmitt frá Asetek þar sem það að stækka vatnskassann mikið umfram það að 120mm vifta myndi kæla hann myndi skila litlu. Maður hefur s.s. séð helmingi stærri vatnskassa í gegnum tíðina kælda með 2x120mm viftum og oft talið það overkill.
En allavega skv. niðurstöðum rannsóknarinnar þá skipti meira máli að hafa öflugir dælu sem þ.a.l. dælir vatninu hraðar(meira magni) í gegnum kerfið, en þetta þarf þó allt að vera í hlutföllum.
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1232
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Yank á Fim 27. Maí 2010 22:13

Alli_Ofur skrifaði:Það er alveg fáránlegt að það sé ekki hægt að festa vatnskassann þannig að viftan blási út úr kassanum.

Ég hefði nú viljað sjá víðari mynd úr kassanum, svona til að sjá hvernig heildarmyndin lítur út.
Þú ert nú ekki þekktur fyrir að klikka á myndunum. ;)

Það hefði ekki verið verra ef þú hefðir tekið db mælinn á þetta líka, annars fín samantekt.


Ha já hljóðmyndun :oops:
Hún tíndist í copy/past er komin inn nú.

Þú getur að sjálfsögðu snúið viftunni þannig að hún blási út, en það þýðir töpuð afköst fyrir kælinguna.
Allur búnaðurinn fer inn í kassann, viftan á hefðbundnum stað. Hefði tekið aðra mynd fyrir þig en vélin er í hreinsun hjá Beco.
Ef þú rýnir í þessa hér að neðan þá sérðu viftuna. En viltu ekki bara sjá betri mynd af skákortinu og minninu :lol:

Mynd
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1232
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Alli_Ofur á Fim 27. Maí 2010 22:44

Ég hefði vilja að það væri hægt að festa vatnskassann á bakhlið kassann að innanverðu og setja viftuna utaná vatnskassann og blása út í gegnum vatnskassann.

Flottar myndir af minnum og skjákortum eru líka alltaf velkomnar. :)
If you think that professionals are expensive, Just wait until you see what amateurs can cost you.

http://www.kisildalur.is/
Einkennismynd notanda
Alli_Ofur
 
Innlegg: 397
Skráði sig: Mið 06. Júní 2007 20:47
Staðsetning: Reykjavik

Re: Corsair H50 örgjörvakæling Review

Sendaaf Yank á Fim 27. Maí 2010 23:49

Alli_Ofur skrifaði:Ég hefði vilja að það væri hægt að festa vatnskassann á bakhlið kassann að innanverðu og setja viftuna utaná vatnskassann og blása út í gegnum vatnskassann.

Flottar myndir af minnum og skjákortum eru líka alltaf velkomnar. :)


Það er í sjálfu sér alveg hægt og í raun hægt að hafa 2 viftur þess vegna, eina sem sogar loft út og ein sem blæs því út, prufað þetta ekki, en götin eru til staðar á vatnskassanum til þess að festa tvær viftur á þann hátt.
En við það að blása lofti út úr kassanum í gegnum vatnskassann tapast kæligeta enda loft inní kassanum heitara en utan hans.
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1232
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15


Fara aftur á Kassar og Kælikerfi

Hverjir eru tengdir

Notendur að skoða þetta spjallborð: Engir skráðir notendur og 0 gestir

cron