það er í rauninni ekki rétt að kalla það "upscale", heldur er það endurskönnun á filmunni.
í þessu megapixla markaðssetta vídjó samfélagi í dag er fólk komið með miklar ranghugmyndir um hvað gefur mynd skerpu og "gæði".
það sem skilar skerpu, góðum litum og "háum gæðum" er eftirfarandi í þessarri röð:
- góð lýsing
- góðar linsur
- stór myndflötur (semsagt stærð myndflögu eða filmu)
- ISO upplausn myndflatar
- megapixla upplausn myndflatar
í dag eru komnir símar sem geta tekið "HD" myndbönd, og fólk trúir því blint að það sé virkilega að taka upp gæða myndbönd þannig, þrátt fyrir að það sé að nota linsur og myndflögur á stærð við eldspítuhaus.
bíómyndir í "gamla daga" voru teknar á 24, 36 og 72mm filmu, þetta jafnast á við myndflögur í SLR myndavélum, Canon 50D, 500D og álíka myndavélar hafa 24mm myndflögu og Canon 1D og 5D hafa 36mm myndflögu. Þessar filmur hafa rosalega upplausn, og þá sérstaklega 72mm filmurnar (sem eru notaðar í IMAX myndavélum). Það er lítið mál að skanna þessar filmur í dag og fá margfalda upplausn á við "HD" myndavélar í dag.
Bestu stafrænu vídjóvélarnar í dag eru farnar að nota 24 og 36mm myndflögur og einstaka vélar jafnvel töluvert stærri flögur. Þessar vélar eru að skila 2048 til 4096 láréttum línum í upplausn, en það er þá líka endanleg upplausn á myndunum og það er ekki hægt að hækka hana eftirá með endurskönnun, sem er alltaf hægt með vel upptekinni filmu.
Það er svo mikið spáð í því hvort að það muni svo á annaðborð nokkurntíman þurfa hærri upplausn en 4096 láréttar línur, þar sem að það er orðin mjög há upplausn. Margir eru líka á því að 2048 sé meira en nóg og vilja frekar nota það, þar sem að myndflögur með lægri upplausn eru ljósnæmari og skila þar af leiðandi betri mynd í verr lýstu umhverfi.