>>>
Kæliviftur verða seint taldar til spennandi hluta vélbúnaðar. Þótt þær séu ekki spennandi þá má ekki gleyma því að þær eru mjög mikilvægar. Flestir hlutir vélbúnaðar mynda hita og langalgengast leiðin til þess að kæla vélbúnað er að nota kæliviftur. Kælivifta sem bilar þýðir hækkun á hita vélbúnaðar sem síðan getur valdið óstöðugleika og jafnvel á eyðilagt vélbúnað á endanum. Það er því klárt að kæliviftur eru einhver mikilvægasti hluti vélbúnaðar, en þessu er ótrúlega auðvelt að gleyma.

Mynd frá Cooler Master
Sú kassavifta Cooler Master Excalibur sem hér verður skoðuð pínu var lögð til af Cooler Master Europe.
Aðeins um Cooler Master
Cooler Master var stofnað með það að markmiði að setja á markað bestu kælilausnir fyrir tölvubúnað. Fyrirtækið var stofnað fyrir um áratug og hefur allar götur síðan haldið fast í þetta markmið. Þegar kemur að tölvukössum er Cooler Master þekktast fyrir Staker seríu sína í en þeir tölvukassar henta vel undir leikjavélar. Nánar um Cooler Master hér
>>>
Kassi og fylgihlutir
Eins og ég kom inná í innganginum þá teljast viftur og þá sérstaklega kassaviftur varla spennandi, en hvað gerir þú þá til þess að gera þær spennandi? Jú þú gefur þeim svalt nafn eins og Excalibur. Fyrir þá sem ekki vita þá tengist nafnið Excalibur þjóðsögunni um Arthúr konung, en þetta var nafnið á sverði hans.


Fylgihlutir eru:
- 4x gúmmífestingar
- 4x málmskrúfur
- 4ra yfir í 3ja pinna aflbreytistykki

>>>
Nánar um Cooler Master Excalibur
Cooler Master Excalibur er 120mm kassavifta úr málmi og plasti. Hljóðmyndun er gefin upp frá 13-30db, snúningshraði er 600-2000 og mesta orkunotkun er gefin upp sem 6W.

Það sem skilur Cooler Master Excalibur frá meðal 120mm kassaviftu er efnisvalið, gæðin og hönnunin. Efnisvalið kemur berlega í ljós þegar maður handfjatla viftuna í fyrsta skiptin, en hún er mun þyngri en hefðbundnar viftur. Hægt er að fjarlægja blöðin með einu handtaki til þess að auðvelda þrif á viftunni.

Mynd fengin frá Cooler Master
Það skyggir svolítið á að til þess að ná blöðunum af þarf að fjarlægja viftuna úr kassanum. Þannig maður spyr sig hvort þessi möguleiki sé yfir höfuð á endanum gagnlegur. Þægilegra væri ef viftunni væri komið fyrir í einhverskonar smellufestingum í kassanum sem yrðu þar eftir og hægt væri að kippa viftunni úr til þess að þrífa hana. Það er nefnilega ekki hægt að reka puttanna í gegnum grillið á venjulegum kassa til þess að losta viftuspaðann úr.


>>>
Pínu samantekt
Cooler Master Excalibur er vifta sem skilur sig frá fjöldanum, hönnun hennar, afkastageta og hljóðmyndun gera hana að góðri kassaviftu. Fyrir það fær hún tech.is meðmæli.


Mynd frá Cooler Master
Copyright Yank 2009
Editor RISI
