>>>
Kostir stafræns myndaalbúms umfram hefðbundið myndaalbúm eru fjölmargir. Sá helsti er að hægt er að vista gífurlegan fjölda mynda á slíkra græju, klárlega fleiri en maður myndi prenta út eða láta framkalla og bera síðan á sér daglega.

Það stafræna myndaalbúm (album®) sem hér verður prófað var keypt af höfundi í versluninni Fotoval.
>>>
Kassi og fylgihlutir

Kassinn utan um album® komu mér á óvart, enda fylgja hér sennilega fleiri myndir af honum heldur en góðu hófi gegnir. Kassinn er úr frauðplasti, vel fer um innihaldið og það er vel varið í kassanum.



Fylgihlutir
• Leiðbeiningabæklingur, enska, franska,þýska, ítalska, spænska, portúgalska, finnska, danska, sænska, ofl tungumálum.
• Skiptanleg rafmagnskló fyrir innstungur mismunandi rafmagnskerfa allra helstu landa.
• USB snúra.
• Leðurhlíf.


>>>
Nánar um album®

album® stafræna myndaalbúmið er búið 7 tommu 800x480 díla skjá. Innra minnið er 4GB sem hægt er að auka í alls 20GB með því að bæta við 16GB SD minniskorti.
Hægt er að tengja album® með USB kaplinum við flestar gerðir myndavéla og lesa myndirnar beint af þeim. Einnig er hægt að lesa myndir beint af SD minniskorti eða tengja album® við tölvu og flytja myndir þannig á græjuna.
Umskiptanlegur rafmangstengill gerir það kleyft að hlaða album® í hvaða landi sem er. Rafhlöðuending er 3 klukkustundir.

Hægt er að nota leðurhlífina til þess að láta album® standa á eigin spýtur og spila myndsýningu bæði undir eigin afli (rafhlöðu) eða tengdu rafmagni.

Hægt er að smella leður hlífinni af með einu handtaki. Þetta er eitthvað sem ég áttaði mig ekki á fyrr en album® hafði skollið í gólfið úr 1,5 metra hæð. Leðurhlífin small af eftir að ég reyndi að taka það upp á leðrinu einu. Það er allavega á hreinu að album® þolir töluvert högg, því stafræna albúmið lenti beint á flísalagt gólfið án þess að illa færi.

>>>
Pínu samantekt
album® stafræna myndaalbúmið er vönduð græja með mikið notagildi. Þú getur tekið það með þér og sýnt myndir af því á ferðinni, eða sett það upp heima hjá þér og notað sem stafrænan myndaramma.
Allir stafrænir myndarammar eða stafræn myndaalbúm standa og falla með gæðum skjásins, og það verður að segjast eins og er að 7“ skjár album® myndaalbúmsins er hreint út sagt frábær. Skýr, bjartur, og með góðum (réttum) litum.

album® sleppur ekki við athugasemdir. Sú helsta er að háglans áferðin að framan veldur því að við hverja snertingu skilur þú eftir fingrafar, sem verður nokkuð auðsjáanlegt. Myndin hér að ofan sýnir þetta vonandi. Þessi ókostur að verða fljótlega útklíndur í sjáanlegum fingraförum er kjánalegur, fyrir græju sem þú munt rétta aðila til þess að hann geti skoðað myndirnar.
Stjórnun album® fer í gegnum þrjá hnappa sem staðsettir eru hægra megin á græjunni. Stjórnunin er einföld, en varla hægt að kalla hana ríkulega. Það eina sem ég sakna sérstaklega er að ekki er hægt að velja tilviljanakennda (random) röð myndasýningar.
Fyrir frábæran 7“ skjá, notagildi og hversu meðfærileg þessi græja er, fær album® tech.is meðmæli.

Copyright Yank 2010
Editor RISI (á eftir að lesa)
