Hugbúnaðarverkfræði vs Tölvunarfræði

Umræður um daginn og veginn

Hugbúnaðarverkfræði vs Tölvunarfræði

Sendaaf coldcut á Fös 11. Júní 2010 00:42

Heyrðu núna er ég í svolitlum bobba því að mig langar ofsalega að skipta um fag í HÍ. Fögin sem ég er mest spenntur fyrir eru Hugbúnaðarverkfræði og Tölvunarfræði og ég á svolítið erfitt með að velja á milli.
Er einhvern veginn spenntari fyrir hugbúnaðarverkfræðinni en finnst svolítið fráhrindandi hvað það er mikil eðlisfræði og stærðfræði í henni þar sem maður þarf að taka einhverja verkfræði kúrsa.
Hafiði farið í þessi fög eða þekkiði einhverja sem hafa farið í þessi fög í HÍ og hafa eitthvað talað um hvernig kennslan var?
Þigg öll góð ráð
Macbook - SnowLeopard/Ubuntu

"In a world without fences and walls, who needs gates and windows?"
coldcut
 
Innlegg: 133
Skráði sig: Þri 02. Desember 2008 22:26

Re: Hugbúnaðarverkfræði vs Tölvunarfræði

Sendaaf Stutturdreki á Fös 11. Júní 2010 09:28

15 ár síðan ég byrjaði í tölvunafræði í HÍ svo ég geri ráð fyrir að kennsluefnið hafi eitthvað breyst síðan þótt heitinn séu flest kunnugleg.

En ef maður ber saman Hugbúnaðarverkfræðina og Tölvunarfræðina þá er Tölvunarfræðin eiginlega eins og Hugbúnaðarverkfræðin -stærðfræði. Stærðfræðin í Hugbúnaðarverkfræðinni er mjög svipuð og hún var þegar ég byrjaði í Tölvunarfræði, nema hvað það eru kenndir B áfangar (stærðfræðigreining og línuleg algebra) í stað C.

Ef þú hefur góðan stærðfræði grunn þá ætti Hugbúnaðarverkfræðin alveg að ganga upp hjá þér, annars er það mín reynsla af tölvunarfræðiskorinu sú að þau eru mjög 'líbó' þannig að ef þú ferð í Tölvunarfræðina þá kemstu örugglega upp með að taka þá kúrsa sem þú hefur áhuga á úr Hugbúnaðarverkfræðinni sem val.

Annars mæli ég bara með því að þú bankir bara upp á hjá skorarformanninum eða jafnvel bara Ebbu Þóru eða Hjálmtý Hafsteins og fáir að ræða við þau.
Einkennismynd notanda
Stutturdreki
 
Innlegg: 545
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 22:53

Re: Hugbúnaðarverkfræði vs Tölvunarfræði

Sendaaf coldcut á Fös 11. Júní 2010 22:53

Eftir að hafa talað við Ebbu í dag að þá er ég nánast orðinn ákveðinn í að fara í tölvunarfræðina en var að velta fyrir mér að lokum hvaða Masters-gráðu maður getur tekið með B.S. í tölvunarfræði? Veit einhver það? :)
Macbook - SnowLeopard/Ubuntu

"In a world without fences and walls, who needs gates and windows?"
coldcut
 
Innlegg: 133
Skráði sig: Þri 02. Desember 2008 22:26

Re: Hugbúnaðarverkfræði vs Tölvunarfræði

Sendaaf Stutturdreki á Mán 14. Júní 2010 11:17

Held að það sé nú frekar opið allt saman. Með Bs úr Verkfræði-/Raunvísindadeild ættirðu að geta haldið áfram í Ms í hvaða fagi sem er innan Verk-/Raunvísindadeildar. Ef þú hefur áhuga á öðrum deildum, td. Hugvísindadeild þá er best að fara bara og tala við skorarformenn þar, með réttum valfögum gengur það kannski upp.
Einkennismynd notanda
Stutturdreki
 
Innlegg: 545
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 22:53


Fara aftur á Heiti potturinn

Hverjir eru tengdir

Notendur að skoða þetta spjallborð: Engir skráðir notendur og 1 gestur