Nafnabreyting á mörgum myndum í einu

Windows stýrikerfin og hugbúnaður fyrir þau

Nafnabreyting á mörgum myndum í einu

Sendaaf coldcut á Fim 22. Júlý 2010 09:25

Sælir

Ég hélt og vonaði að það kæmi aldrei sá dagur að ég þyrfti að líta hérna inn aftur en því miður er ég að vinna með tölvu í vinnunni sem er með XP og er í smá veseni.
Þannig er að ég er að vinna við það að skanna inn loftmyndir og nota til þess forrit sem heitir UltraScan. Til þess að gera vinnuna auðveldari og fljótlegri þá er hægt að setja upp svona project þannig að skanninn telur myndirnar sem þarf að skanna og númerar eins og honum er sagt að gera (er kannski að skanna myndir frá 3372-3592) og forritið nefnir þá loftmyndirnar automatískt. En það kemur fyrir að stundum nemur skanninn ekki eina loftmynd (skanninn nemur hornamerki sem maður tilgreinir við fyrstu mynd og eiga að vera eins alla filmuna) og þá fer talningin í rugl og maður kemur kannski í vinnuna daginn eftir og þá eru allt í einu 60+ merktar númeri of hátt (mynd 3420 merkt sem 3419 o.s.frv.). Ef maður ætlar að leiðrétta þetta að þá tekur það óralangan tíma því að 3 eintök eru gerð af myndunum + textaskrá fyrir hverja þeirra og það eru núna um 70 myndir vitlaust merktar.

Er einhver leið til þess að lagfæra þetta í command prompt eða vitiði um eitthvað forrit sem getur gert þetta?
Macbook - SnowLeopard/Ubuntu

"In a world without fences and walls, who needs gates and windows?"
coldcut
 
Innlegg: 133
Skráði sig: Þri 02. Desember 2008 22:26

Re: Nafnabreyting á mörgum myndum í einu

Sendaaf Yank á Fim 22. Júlý 2010 10:25

Photoshop og ligthroom geta þetta.
Eflaust einhver frí software einnig.

Starf við að skanna inn loftmyndir. Íslenska leyniþjónustan búinn að læsa klónum í þig :) :?: :!:
Ágiskun er eina von hins fáfróða
Einkennismynd notanda
Yank
 
Innlegg: 1226
Skráði sig: Sun 03. Júní 2007 00:15

Re: Nafnabreyting á mörgum myndum í einu

Sendaaf fleimur á Fim 22. Júlý 2010 10:27

Ég hef notað þetta forrit til þess að rename-a
fleimur
 
Innlegg: 91
Skráði sig: Fös 03. Ágúst 2007 15:53

Re: Nafnabreyting á mörgum myndum í einu

Sendaaf coldcut á Fim 22. Júlý 2010 11:46

Yank skrifaði:Starf við að skanna inn loftmyndir. Íslenska leyniþjónustan búinn að læsa klónum í þig :) :?: :!:


Oh crap...now I'll have to kill you!

En takk fyrir tillögurnar ætla að athuga þetta. Hef nefnilega ekki fundið neitt forrit sem getur t.d. hækkað öll númer um eitt, bara svona einhver basic rename forrit.

...you heard nothing! :evil:
Macbook - SnowLeopard/Ubuntu

"In a world without fences and walls, who needs gates and windows?"
coldcut
 
Innlegg: 133
Skráði sig: Þri 02. Desember 2008 22:26

Re: Nafnabreyting á mörgum myndum í einu

Sendaaf Vileshout á Fös 23. Júlý 2010 12:46

irfanview ætti að geta þetta
Vileshout er skrifaður í MATH-MATIC.
Einkennismynd notanda
Vileshout
 
Innlegg: 233
Skráði sig: Fim 31. Maí 2007 19:43
Staðsetning: Capital city Grímsnes


Fara aftur á Windows

Hverjir eru tengdir

Notendur að skoða þetta spjallborð: Engir skráðir notendur og 1 gestur

cron