21. December 2009
Yank
Kísildalur er fluttur í Síðumúla 15

Í dag 21. Desember opnaði verslunin Kísildalur í nýju og glæsilegu húsnæði í Síðumúla 15. Eldra húsnæði í Álfheimunum var löngu sprungið utan af starfseminni og kominn tími til að stækka. Þótt verslunin Kísildalur sé ekki nema um fjögra ára gömul þá hefur hún skapað sér nokkra sérstöðu vegna þjónustulundar og vöruvals. Kísildalsmenn flytja sjálfir inn mörg af þeim vörumerkjum sem þeir bjóða uppá, en flest þeirra höfðu ekki sést hér á landi áður. Þegar tech.is bar að garði voru Kísildals menn önnum kafnir við að koma sér fyrir og höfðu í nógu að snúast.

3. September 2009
Yank
Tölvuvirkni flytur

Í byrjun vikunnar flutti verslunin Tölvuvirkni í nýtt og glæsilegt húsnæði. Þeir í Tölvuvirkni kunna augljóslega vel við sig í Smáranum enda fóru þeir ekki langt, einungis rétt fyrir götuna og er verslunin nú staðsett á jarðhæð í húsi Hjartaverndar Holtasmára 1. Til þess að finna Tölvuvirkni miðar þú bara á hjartað.