6. December 2008
Yank
Logitech Wave lyklaborð Review

Þegar maður heyrir á tal tveggja tölvuáhugamanna fær maður það stundum á tilfinninguna að verið sé að tala um trúarbrögð en ekki hluti tengdum tölvum, slíkur er ofsinn og sannfæringin um ágæti þess búnaðar sem viðkomandi notar. Þetta á ekki síst við um jaðarbúnað eins og mýs og lyklaborð, en þar virðist vani oft ráða mestu. Efni þessarar greinar verður lyklaborð frá Logitech sem hefur þá sérstöðu að skera sig aðeins úr frá restinni sökum hönnunar.

2. December 2008
Yank
OCZ NIA (Neural Impulse Actuator) Heilamúsin Review

Það hafa eflaust margir velt því fyrir sér hvenær dagar músar og lyklaborðsins verða taldir. Hvenær hverfur þessi kunnuglegi jaðarbúnaður af markaði, og hvað tekur við? Það eru ýmsar útfærslur í þróun eins og t.d. raddstýring, og snertiskjáir. Raddstýring virkar þannig að þú segir tölvunni hvað þú vilt að hún geri, og hún tekur niður það sem þú segir án þess að höndin komi þar nokkur staðar að, nokkurskonar einkaritari. Microsoft og fleiri fyrirtæki hafa þegar gert tilraunir með slíkt og stuðningur við raddstýringu hefur þegar sést í Windows XP og Vista, þótt það hafi eflaust farið fram hjá mörgum.

2. July 2008
Yank
Logitech diNovo Mini review

Eins og flestir vita sérhæfir Logitech sig í framleiðslu á jaðarbúnaði, og lyklaborðin frá þessu fyrirtæki eru löngu orðin þekkt hér á landi fyrir góða hönnun og gæði. Lyklaborðið sem hér verður skoðað er Logitech diNovo Mini. Þetta lyklaborð er langt frá því að teljast hefðbundið, en það gerir það bara forvitnilegra. Það Logitech diNovo Mini sem hér er prufað var lagt til af Logitech nordic.

18. November 2007
Yank
BenQ FP222WH LCD skjár review

Fyrir ekki svo löngu skrifaði ég umfjöllun um Samsung SyncMaster 226BW skjá (þessi umfjöllun er að hluta til áframhald á þeirri umfjöllun). Satt að segja hafði ég vonað að það yrði mín fyrsta og síðasta umfjöllun um skjái. Ekki fyrir þær sakir að mér finnist umfjallanir um skjái ekki mikilvægar, heldur fyrir þær sakir að slíkar umfjallanir endurspegla um of skoðanir höfundar og huglægt mat. Enginn "stöðluð" aðferð er til að meta gæði LCD skjáa, og það er erfitt að taka sér slíkt fyrir hendur. Ástæðan er sú að ekki er auðvelt að keyra próf á skjái sem gefa mælanlega niðurstöðu eins og hægt er með flestan annan tölvubúnað. Auðvelt er t.d. með prófunum að mæla fjölda ramma sem skjákort nær að sýna á sekúndu í tilteknum leik. Sú niðurstaða gefur svo beint viðmið til þess að meta afl m.v. önnur skjákort. Vissulega hafa hinar og þessar vefsíður komið sér upp ýmsum "mæliaðferðum" til þess að leggja mat á gæði LCD skjáa, en þegar á botninn er hvolft er endanlega niðurstaða mestmegnis byggð á huglægu mati.

27. August 2007
Yank
Samsung SyncMaster 226BW review

Í gegnum árin hefur það einhvern veginn verið þannig hjá mér að þegar kom að því að velja tölvubúnað stóð oft einn hlutur á hakanum, nefnilega hvernig skjá átti að fá sér. Oft var búið að eyða löngum tíma í að velja móðurborð, örgjörva og minni en svo þegar kom að því að velja skjá, þá er eins og... já æ, heyrðu ég tek bara þennan, hann er ágætur er það ekki?. Þetta var mögulega vegna þess að úrvalið var ekki svo mikið, einungis var um CRT skjái að velja hérna í "gamla daga" og oft var erfitt að sjá mun á gæðum þeirra, þrátt fyrir mikinn verðmun. Eða þá einfaldlega: ég hafði ekki nægjanlegt vit á þessu til þess að sjá muninn.