Í gær kom í gegnum windows update ný uppfærsla, sem er einstök og á sér forsögu. Evrópusambandið hefur skikkað MS til þess að bjóða upp á uppsetningu annarra vafra en Internet Explorer í uppsetningu á Windows. Þetta mun Evrópusambandið hafa gert til þess að tryggja eðlilega samkeppni vafraframleiðenda. Uppfærslan sem kom í gær er fyrir stýrikerfi sem þegar hafa verið sett upp, en eftir endurræsingu kemur upp valgluggi þar sem hægt er að velja að setja upp 11 vafra aðra en IE8.

Þrátt fyrir að leikurinn Call of Duty: Modern Warfare 2 hafi komið á markað fyrir einungis þremur dögum hefur hann þegar ritað nafn sitt í sögubækurnar. Fyrstu 24 klukkustundirnar seldist leikurinn fyrir 310 milljón dollara eða í um 4,7 milljón eintökum. Þetta mun vera mesta innkoma á fyrstu 24 klukkustundunum í sögu skemmtanaiðnaðarins.

Tech.is skorar á Microsoft að leyfa sölu á Windows 7 Family Pack á Íslandi. Windows 7 Family Pack gerir kaupendum kleyft að setja upp Windows 7 Home Premium á þrjár tölvur á heimilinu, sem þegar hafa uppsettar eldri útgáfur af Windows á þeim. Kosturinn við þetta er að þetta gerir heimilum mögulegt að uppfæra stýrikerfi sín fyrir brot af þeim kostnaði sem það myndi kosta að kaupa þrjú stök leyfi. Því miður mun Microsoft hafa takmarkað sölu á þessum pakka við einungis átta Evrópulönd; Bretland, Írland, Þýskaland, Frakkland, Sviss, Austurríki, Holland, og Svíþjóð. Það verður ekki hér farið mörgum orðum um það hversu mikið þetta myndi létta undir með skuldsettum Íslenskum heimilum og hversu jákvætt það væri fyrir ímynd Microsoft á Íslandi að taka þátt með þessum hætti í því að létta útgjaldaálag íslenskar heimila. Tech.is skorar á Microsoft að leyfa sölu á Windows 7 Family Pack á Íslandi og óskar eftir þínum stuðningi í formi undirskiptasöfnunar hér fyrir neðan. Þessum lista verður síðan komið til Framkvæmdastjóra Microsoft.

Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni að Jólin koma snemma í ár. Í dag 22. Október er Windows 7 formlega sett á markað. Margir hafa beðið spenntir og eftirvæntingin hefur verið mikil. Margir hafa reyndar þegar kynnst kostum þessa stýrikerfis og jafnvel notað mánuðum saman, enda gerði Microsoft það mögulegt með því að gera prufuútgáfu af stýrikerfinu aðgengilega án endurgjalds í formi Windows 7 RC. Í Maí 2009 birtist á tech.is grein sem fjallar um fyrstu kynni af Windows 7 RC, þeir sem vilja kynna sér kosti Windows 7 geta nálgast þá grein hér

Það er ekki langt síðan við sögðum frá alvarlegum galla í Mac OsX Snow Leopard þar sem að notandi gat tapað öllum gögnunum sínum. Maður hefur oft heyrt af þessu, enda eru alvarlegu gallarnir yfirleitt meira en bara smá bakhola sem einhver getur mögulega nýtt sér, en hinsvegar hef ég aldrei lent í neinum af þessum alvarlegu göllum. Það hlaut því að koma að því fyrr eða síðar að maður yrði einn daginn fórnarlamb alvarlegra hugbúnaðargalla.
Núna sit ég uppi með það súra epli að nánast öll mín persónulegu gögn, svosem myndir, tónlist og annað er horfið af tölvunni minni.

Nýr galli hefur komið í ljós í Snow Leopard stýrikerfi Apple. Þetta er annar alvarlegi gallinn sem kemur í ljós í Snow Leopard, en stuttu eftir fyrstu útgáfu stýrikerfisins kom í ljós að Apple höfðu látið gamla óörugga útgáfu af Adobe Flash fylgja með kerfinu sem getur mögulega gert óprúttnum aðillum mögulegt að komast inná tölvurnar í gegnum netið. Nýji gallinn er þó töluvert alvarlegri og hefur núþegar valdið því að fjöldi fólks hefur tapað gögnunum sínum.

Hægt er að nálgast Internet Explorer 8 vefvafrann Beta útgáfu á heimasíðu Microsoft. IE 8 er búinn margvíslegum endurbótum á öryggi og öðrum möguleikum sem vert er að skoða.

Fyrir skömmu birti Apple upplýsingar um nokkur einkaleyfi sem fyrirtækið hefur fengið samþykkt. Forvitnilegast af þeim er þrívíddar skjámynd (Desktop), sem mun væntanlega sjást í framtíðar stýrikerfum frá fyrirtækinu.

Á síðasta ári höfðuðu nokkrir einstaklingar mál gegn Microsoft og kröfðust bóta fyrir að hafa verið blekktir með auglýsingaherferð Microsoft. Sú herferð gekk út á að gefa hinum og þessum vélbúnaði vottun um að hann myndi uppfylla staðal fyrir Windows Vista stýrikerfið (Windows Vista Capable). Lítið hefur gerst í þessum málaferlum fram að þessu og flestir átt von á því að samið yrði um bætur án dóms. Á þessu hefur orðið breiting.

1. nóvember 2008 hætti Micorsoft að selja leyfi fyrir Windows 3.x. Dagar þessa 18 ára stýrikerfis eru því taldir. Hvort sem þið trúið því eða ekki þá mun sala á leyfum fyrir Windows 3.x hafa farið minnkandi síðustu ár og sala á því ekki sérstaklega arðvænleg lengur.
Nýjasta af spjallinu





























