Í gær sendi Síminn viðskiptavinum sínum bréf þar sem tilkynnt er um breytingu á skilmálum og verðskrá Internet þjónustunnar. Samkvæmt þessum skilmálum mun Síminn m.a. áskilja sér rétt til þess að mæla gagnamagn til og frá notanda, en hingað til hefur einungis gagnamagn til notanda verið mælt. Einnig mun þetta gagnamagn vera fært niður í 10GB m.v. 7 daga tímabil en var áður 20GB. Það er því klárlega um töluverða skerðingu á þjónustu um að ræða.

Hefur þú einhvern tímann ætlað að koma elskunni þinni á óvart með því að panta borð á veitingastað í gegnum veraldarvefin? eða jafnvel pantað gjöf í gegnum vefinn? Allt kemst síðan upp því elskan þín hefur fylgst með hverju skrefi þínu á vefnum með því að skoða history í Internet Explorer. Með InPrivate mode sem koma mun innbyggt í Internet Explorer 8 mun þetta vandamál vera úr sögunni.

Gary McKinnon meintur breskur tölvuþrjótur var handtekinn árið 2002 eftir að hafa verið ákærður fyrir að brjótast inn á 97 tölvur í eigu Bandaríska hersins, NASA og fleiri stofnanna tengdum vörnum landsins. Hann á yfir höfði sér allt að 70 ára fangelsi ef dæmdur sekur. Allt frá handtöku hefur hann barist gegn framsali sem nú er yfirvofandi.

Samkvæmt tilkynningu frá iLoung hefur YouTube sett á áætlun að skiptu um video gagnasnið til að aðlagast Apple TV.
Nýjasta af spjallinu





























