14. January 2010
Yank
Tölvukassi gerður hljóðlátur á ódýran hátt

Flestir ef ekki allir framleiðendur tölvubúnaðar hafa gert sér grein fyrir því að hljóðmyndun frá búnaði getur verið hvimleið fyrir notandann. Það er fátt eins pirrandi en að hafa hávaðasama vél í næsta nágreni og það er lítil sárabót þótt að hún sé öflug. Framleiðendur vélbúnaðar hafa því markaðssett vörur með það að í huga að draga úr hljóðmyndun án þess að kæligetu sé fórnað um of. Þannig er t.d. til úrval af vörum eins og tölvukössum, örgjörvakælingum, kassaviftum, aflgjöfum, osfv. sem sérhannaðar eru með það að leiðarljósi að vera hljóðlátar. Örgjörvaframleiðendur hafa einnig tekið þátt í leiknum og hafa framleitt sérstaka örgjörva sem taka til sín minni afl en ella og hitna þ.a.l. minna. Slíkir örgjörvar eru kjörnir í HTPC vélar, en mikilvægt er að slíkar vélar séu hljóðlátar. Það má alltaf gera betur í þessum efnum og er það aðal kveikjan að þessari grein.

17. October 2008
Yank
Samsetning á heimabíótölvu

Í þessari grein verður farið í gegnum samsetningu á heimabíótölvu, hvað vélbúnaður og hugbúnaður hentar betur í slíkar vélar umfram annan og hvað notagildi slík tölva hefur. Sú heimabíótölva sem hér er sett saman er af fimmtu kynslóð, þ.e. þetta er fimmta útgáfan af slíkri vél sem ég set saman. Þessi grein byggir á skoðunum og reynslu þess sem hana skrifar og bera að taka sem slíkri.

15. August 2008
Yank
ZyXEL PLA-400 rafmagnslínu lan Review

Nettengingar í heimahúsum er eitthvað sem ég hef haft áhuga á í nokkurn tíma. Best er líklega að hafa ethernet tengi í hverju herbergi og er ekki ólíklegt að slíkt þyki jafn eðlilegt í framtíðinni og lagning símalínu er í dag. Það var lítið hugsað fyrir því í dag, hvað þá fyrir 20-30 árum, að draga earthnet snúrur í veggi á sama hátt og rafmagn. Það getur því verið kostnaðarsamt að koma ethernet leiðslum fyrir eftir á, þannig að prýði þyki af.