
Fyrstu vatnskælingarnar voru að mestu leyti heimasmíð. Fiskabúrs vatnsdæla keypt í næstu gæludýraverslun, slöngur úr plasti, vatnskassar úr vélhjóli, og blokk úr kopar til þess að leiða hitann frá örgjörvanum yfir í vatnið, annað hvort heimasmíðuð eða keypt. Vatnið á kælinguna kom úr krananum, en oftast bætt í það lausn til þess að draga úr gróður og bakteríumyndun. Það leið þó ekki að löngu þangað til hægt var að kaupa heilu vatnskælingasettin frá framleiðendum eins og Asetek (Waterchill). Þessi sett voru flest þannig að þau þurfti að setja saman inní tölvukassanum, en einnig er hægt að fá vatnskælingar þar sem vatnskassinn er staðsettur utan við kassann.

Ef maður spyrst fyrir um vatnskælingu í verslun á Íslandi í dag er algengt að fá það svar að slíkt sé ekki til. Ástæðan er líklega sú að eftirspurnin hefur minnkað, en einnig að margar verslanir hafa brennt sig á því að selja slíkar kælingar í gegnum tíðina. Lekar úr vatnskælingu yfir rándýran vélbúnað og skemmdir sem geta hlotist af því er eitthvað sem þó nokkrir hafa brennt sig á. Slíkar skemmdir falla ekki endilega undir ábyrgð og það er eðlilega gremjulegt fyrir kaupandann og veldur óánægju. Flestar verslanir eru því tregar til þess að bjóða upp á vatnskælingar. Þessi saga er ekkert séríslensk og það hljómar því ekki undarlega að heyra það að hið danska fyrirtæki Asetek hafi liðið undir lok og hætt að framleiða vatnskælingar, og frystikælingar (Waterchill, Vapochill) í neytanda umbúðum.

Sú vatnskæling Corsair H50 sem hér verður tekin til kostanna er markaðssett af Corsair en í raun hönnuð af fyrirtæki sem er engin nýgræðingur á þessu sviði nefnilega Asetek. Asetek hefur endurskipulagt starfsemi sína og flutt vestur um haf. Asetek selur í dag framleiðslu sína einungis til annarra fyrirtækja til markaðssetningar en ekki einstaklinga.
Corsair H50 vatnskæling sem hér er prófuð var keypt af höfundi þessarar greinar.
Aðeins um Corsair
Corsair hefur verið leiðandi í hönnun og framleiðslu á hágæða minni allt síðan 1994. Það er því eðlilegt að það fyrsta sem manni detti í hug þegar maður sér nafnið Corsair sé minniskubbur. Corsair hefur í gegnum árin aukið á úrvalið og það samansendur í dag, m.a. af: minniskubbum, USB minniskubbum, aflgjöfum, tölvukössum, og vatnskælingu.