Cooler Master CM690II Advanced Review
Dagsetning: 8. April 2010
Umfjöllunarflokkur: Kassar og Kælikerfi
Höfundur: Yank


Kæligeta tölvukassa er mjög mikilvæg en tölvukassa ekki einungis ætlað að hylja innihaldið, heldur einnig að halda því svölu. Nútíma tölvubúnaður gefur frá sér töluverðan hita og flestur annar rafeindabúnaður hefur takmarkað þol gegn honum. Viðvarandi of mikill hiti dregur úr endingu vélbúnaðar og veldur óstöðugleika. Þetta er ein ástæða sem gerir það mikilvægt að vanda valið á tölvukassa.

Það er misjafnt hversu mikla áherslu áhugamenn um vélbúnað leggja á það í hversu vönduðum kassa nýkeyptum vélbúnaði er komið fyrir. Fyrir mér er það lykilatriði að kassinn sé vandaður, en hvað er vandaður tölvukassi? Helstu kostir sem prýða góða tölvukassa eru; Hann þarf að vera nægjanlega rúmgóður, hafa skilvirka kælingu, vera hljóðlátur, vera snyrtilegur eða fallegur í útliti, hafa innbyggða snúrustjórnun, hafa fjölbreytilega tengimöguleika að framan (front panel). Fyrir suma skiptir miklu máli að hægt sé að breyta og bæta (mod) kassann sem mest. Mod eða „betrumbætur“ felast t.d. í því að bæta við glugga á hliðina, svo allt fína góssið inn í kassanum sjáist nú ábyggilega, bæta við ljósum, eða bæta við viftum, og fyrir suma virðist þetta ganga svo langt að tala má um ástríðu.

Tölvukassi er einn af fáum hlutum þegar kemur að tölvubúnaði sem hægt er að nýta aftur og aftur, þegar á að uppfæra. Kaup á dýrum tölvukassa er því auðvelt að réttlæta með því að hann komi til með að vera notaður í nokkur ár eða nokkrar uppfærslur.

http://www.tech.is/album/main.php?cmd=image&var1=Cooler+Master+CM690II+Advanced%2FCM+690+II+024.jpg&var2=600_85_tech.png_RD


Sá tölvukassi sem hér verður prófaður er Cooler Master CM690II Advanced útgáfa en kassinn var lagður til af Cooler Master Europe

Aðeins um Cooler Master

Cooler Master var stofnað með það að markmiði að setja á markað bestu kælilausnir fyrir tölvubúnað. Fyrirtækið var stofnað fyrir um áratug og hefur allar götur síðan haldið fast í þetta markmið. Þegar kemur að tölvukössum er Cooler Master þekktast fyrir Staker seríu sína í en þeir tölvukassar henta vel undir leikjavélar. Nánar um Cooler Master hér

http://www.tech.is/album/main.php?cmd=image&var1=Cooler+Master+CM690II+Advanced%2FCoolerMasterSileo500Pic2.jpg&var2=600_85_tech.png_RD