Ég var að horfa á TopGear þátt um daginn, en eitt af uppátækjum þeirra spjátrunga var að betrumbæta bíl fyrir fyrirfram ákveðið fjármagn. Bílinn átti að bæta það mikið að hann yrði a.m.k jafn fljótur að fara hring á brautinni og ákveðin sportbíll. Það fyrsta sem þeir gerðu var að kaupa öflugri bremsur og setja breiðari og betri dekk undir bílinn. Allt kom fyrir ekki bíllinn var hægari að fara hringinn heldur en í upphafi þrátt fyrir þessar fyrstu betrumbætur. Nú hafa uppátæki þessara manna ekki veitt mér innblástur til þessa, en að þessu sinni var annað uppá teningunum því fyrr um daginn hafði ég nefnilega fjárfest í aukahlutum fyrir tölvukassa sem eiga að gera hann hljóðlátari, en eftir að hafa horft á hrakfarir TopGear manna fékk ég efasemdir um að fé hafi verið vel varið. Það er nefnilega ekki alltaf sem hlutir sem virka sjálfsagðir eru það í raun. Á sama hátt og að setja breiðari og gripmeiri dekk undir bíl gerði hann ekki hraðari að fara hring á kappakstursbraut er ekkert víst að þessar hljóðeinangrandi vörur komi til með að skila árangri, eða hvað?
Án þess að flækja einfaldan hlut um of þá varð þetta til þess að ég ákvað að sækja hljóðmælin trausta upp í skáp og mæla hljóðmyndun kassans fyrir og eftir betrumbætur.
Búnaðurinn sem hér á að gera hljóðlátari er þjón heimilisins en þessi búnaður samanstendur af AMD X2 3800+ örgjörva, Gigabyte móðurborði með innbyggðu skjákorti, einum WD harðdisk, Cooler Master 500W aflgjafa og Tacens Prior-M turni. Tacens Prior-M er lítill álturn sem rúmar uATX móðurborð, en er að öðru leiti nokkuð rúmgóður og góður kandídat í betrumbætur enda ódýr turnkassi búinn einni 9CM Tacens Pro 12 db kæliviftu sem blæs lofti út úr kassanum að aftan.

Án þess að ætlunin sé að lasta Tacens Prior-M kassann þá er það staðreynda að hann er búinn þeim vanköntum þegar kemur að hljóðmyndun að vera opin á fimm stöðum; að aftan þar sem PCI spjöldin eru, á tveimur stöðum á hliðinni, annarsvegar neðarlega þar sem PCI spjöldin eru og fyrir ofan örgjörvakælinguna með þar til gerði loftrás. Tacens Prior-M er einnig opin í botninum.

Mjög algengt er að kassar séu opnir á þessum stöðum enda hjálpar það til við kælingu. Þó svo að slíkt sé gott og blessað þegar kemur að kæligetu, þá eru þessar opnanir leiðir fyrir hljóð út úr kassanum.
Að auki er kassinn mestmegnis opinn að framan, þ.e. einungis plastframhliðin lokar honum, þetta fyrirkomulag er einnig algengt.


Til þess að gera kassann hljóðlátari þarf því eðlilega að loka þessum götum.