8. September 2010
Yank
CM Storm Sentinel Advanced mús Review

Hvað gerist þegar fyrirtæki sem hefur helgað sig því að hanna og framleiða kælingar fyrir tölvubúnað, vindur kvæði sínu í kross og fer allt í einu að framleiða mýs og annan jaðarbúnað fyrir harðkjarna tölvuleikjaspilara? Verður músin góð eða léleg? Þetta var það fyrsta sem kom upp í hugann þegar ég heyrði að Cooler Master ætlaði að hella sér út í hönnun á jaðarbúnaði hugsaðan fyrir leikjaunnendur. Þetta var árið 2008 og nú í dag er fyrsta músin komin í hendurnar á tech.is.

27. August 2010
Yank
WD TV Mini margmiðlunarspilari pínu Review

Western Digital kom mörgum á óvart þegar fyrirtækið setti fyrsta margmiðlunarspilarann WD TV HD á markað, er fyrirtækið hafði fram að því verið fyrst og fremst þekkt fyrir framleiðslu á harðdiskum. Þessi spilari þykir hafa makað tímamót í hönnun margmiðlunarspilara því hann var einn af þeim fyrstu ef ekki sá fyrsti sem ekki hefur innbyggðan harðdisk. Til þess að spila margmiðlunarefni þarf að tengja utanaðkomandi hýsingu við spilarann. Síðan WD TV HD kom á markað hefur WD haldið áfram að setja margmiðlunarspilara á markaðinn og nýjasta línan WD TV Live hefur það fram yfir eldir spilara að geta tengst netinu hvort sem það er heimanet eða internetið.

24. August 2010
Yank
Cooler Master Silent ProM 850W Review

Þrátt fyrir að aflgjafi sé mikilvægur hluti vélbúnaðar þá finnst manni hraðinn á þróun hans afar hægur m.v. þróunarhraða á öðrum hlutum vélbúnaðar. Þannig getur aflgjafi hannaður fyrir nokkrum árum verið góður og gildur í dag, en nokkra ára örgjörvi verið úreldur. Þetta er ekki sagt í neinum neikvæðum tilgangi heldur eingöngu til þess að réttlæta það, að sumt sem skrifað er hér á komandi blaðsíðum er endurtekning frá síðustu umfjöllun um aflgjafa sem birtist fyrir rúmum tveimur árum hér á tech.is. Kostir góðs aflgjafi hafa nefnilega lítið breyst síðan þá.

17. June 2010
Yank
album® Stafrænt myndaalbúm pínu Review

Flestir sem taka myndir hafa ánægju af því að sýna þær. Það á jafnt um hvort það séu myndir úr sumarfríinu eða myndir af börnunum. Þægilegt er að sýna myndir í gegnum netið með hjálp netsíða sem gera notenda kleyft að vista myndir sínar án endurgjalds. En maður er ekki alltaf nettengdur og sumir vinnustaðir eru farnir að hefta aðgang að slíkum síðum. Þá er einungis það til ráða að penta út myndirnar á pappír á hefðbundin hátt og taka með sér, eða notast við stafrænt myndaalbúm.

4. June 2010
Yank
Cooler Master Excalibur pínu Review

Kæliviftur verða seint taldar til spennandi hluta vélbúnaðar. Þótt þær séu ekki spennandi þá má ekki gleyma því að þær eru mjög mikilvægar. Flestir hlutir vélbúnaðar mynda hita og langalgengast leiðin til þess að kæla vélbúnað er að nota kæliviftur. Kælivifta sem bilar þýðir hækkun á hita vélbúnaðar sem síðan getur valdið óstöðugleika og jafnvel á endanum eyðilagt vélbúnað. Það er því klárt að kæliviftur eru einhver mikilvægasti hluti vélbúnaðar, en þessu er ótrúlega auðvelt að gleyma.

27. May 2010
Yank
Corsair H50 örgjörvakæling Review

Mín fyrstu kynni af vatnskælingu var árið 2003 þegar ég eignaðist Waterchill vatnskælingarsett frá danska fyrirtækinu Asetek. Þessi sett voru bylting á sínum tíma því þau komu fullbúinn frá framleiðanda, með öllu sem til þurfti, leiðslum, festingum, dælu, vatnsforðabúri, koparblokk fyrir örgjörva, kubbasett og skjákort. Einungis þurfti að setja kerfið saman í tölvukassanum og bæta á vatni. Það skal varlega farið í það hér að tala um að "einungis" hafi þurft að setja það saman, því að koma slíkri vatnskælingu fyrir í tölvukassa er ekki fyrir hvern sem er.

8. April 2010
Yank
Cooler Master CM690II Advanced Review

Kæligeta tölvukassa er mjög mikilvæg en tölvukassa ekki einungis ætlað að hylja innihaldið, heldur einnig að halda því svölu. Nútíma tölvubúnaður gefur frá sér töluverðan hita og eins annar rafeindabúnaður hefur takmarkað þol gegn honum. Viðvarandi of mikill hiti dregur úr endingu vélbúnaðar og veldur óstöðugleika. Þetta er ein ástæða sem gerir það mikilvægt að vanda valið á tölvukassa.

14. January 2010
Yank
Tölvukassi gerður hljóðlátur á ódýran hátt

Flestir ef ekki allir framleiðendur tölvubúnaðar hafa gert sér grein fyrir því að hljóðmyndun frá búnaði getur verið hvimleið fyrir notandann. Það er fátt eins pirrandi en að hafa hávaðasama vél í næsta nágreni og það er lítil sárabót þótt að hún sé öflug. Framleiðendur vélbúnaðar hafa því markaðssett vörur með það að í huga að draga úr hljóðmyndun án þess að kæligetu sé fórnað um of. Þannig er t.d. til úrval af vörum eins og tölvukössum, örgjörvakælingum, kassaviftum, aflgjöfum, osfv. sem sérhannaðar eru með það að leiðarljósi að vera hljóðlátar. Örgjörvaframleiðendur hafa einnig tekið þátt í leiknum og hafa framleitt sérstaka örgjörva sem taka til sín minni afl en ella og hitna þ.a.l. minna. Slíkir örgjörvar eru kjörnir í HTPC vélar, en mikilvægt er að slíkar vélar séu hljóðlátar. Það má alltaf gera betur í þessum efnum og er það aðal kveikjan að þessari grein.

30. December 2009
Yank
Tacens Sagitta II Lux Review

Vöruúrval í íslenskum verslunum með tölvur og tölvubúnað er yfirleitt með ágætum. Það verður samt að segjast eins og er að á þessum síðustu og verstu tímum hefur aðeins grynnkað á vöruúrvalinu. Það þýðir kannski ekki svo mikið að kvarta undan því enda íslenskur markaður lítill. Mér finnst það því alltaf gleðiefni þegar ég rekst á einhverjar nýjar vörulínur í verslunum. Verslunin Kísildalur hefur í nokkurn tíma boðið uppá vörur frá Tacens, og var aflgjafi frá þeim Tacens Supero tekin til kostanna fyrir ekki löngu. Nýlega fór Kísildalur að bjóða uppá turnkassa frá Tacens, og því ekki úr vegi að skoða einn turn frá þessu fyrirtæki.

2. November 2009
Yank
ICY BOX IB-MP309HW-B margmiðlunarspilari Review

Margmiðlunarspilarar sem geta spilað hágæða myndefni eru eftirsóttir, og marga dreymir um að eignast slíkan. Helsta vandamál fyrstu kynslóða slíkra spilara var að þeir gátu spilað mjög takmarkað magn hágæða skráartegunda, annað hvort einungis eina eða fáar slíkar gerðir. Ég var því eðlilega nokkuð forvitin þegar ég fékk tækifæri til þess að prófa ICY BOX IB-MP309 margmiðlunarspilarann, en Raidsonic heldur því fram að hann spili öll núverandi kvikmyndaskráarform.