Með tilkomu video skráa í 1080p upplausn hefur pláss verið að skornum skammti hjá mér og eflaust mörgum. Það gæti því glatt marga að segja frá því að Seagate var að gefa út nýjan 3TB harðann disk en fyrri kynslóðir buðu mest uppá 2TB.

Fór í Tölvutek í dag og sá þá í fyrsta skipti Nvidia 3D vision gleraugu en birt var frétt um þau hér á tech.is fyrir nokkru. Í Tölvutek gefst tækifæri til þess að skoða þessi gleraugu en þar er uppsett sýning með Asus G51JX-IX052V 3D fartölvu og einnig "hefðbundinn borðvél" búnum skjá 23" ASUS 23" 3D 120Hz skjá sem þarft til þess að nýta þessa tækni.

"Fréttatilkynning frá CM"
Ertu að leita að örgjörvakæli sem lítur vel út og er einnig öflugri en samkeppnin? Biðin er þá á enda því Cooler Master V6GT kemur með ferska hugsun í hönnun, án þess að fórna kæligetu. Cooler Master V6GT getur samkvæmt prófunum framleiðanda haldið Intel Xenon X5670 yfirklukkuðum í 4GHz undir 70 °C og Intel I5 655K yfirklukkuðum í 5.269GHz undir 66 °C.

Flestir sem taka myndir hafa ánægju af því að sýna þær. Það á jafnt um hvort það séu myndir úr sumarfríinu eða myndir af börnunum. Þægilegt er að sýna myndir í gegnum netið með hjálp netsíða sem gera notenda kleyft að vista myndir sínar án endurgjalds. En maður er ekki alltaf nettengdur og sumir vinnustaðir eru farnir að hefta aðgang að slíkum síðum. Þá er einungis það til ráða að penta út myndirnar á pappír á hefðbundin hátt og taka með sér, eða notast við stafrænt myndaalbúm.

Kæliviftur verða seint taldar til spennandi hluta vélbúnaðar. Þótt þær séu ekki spennandi þá má ekki gleyma því að þær eru mjög mikilvægar. Flestir hlutir vélbúnaðar mynda hita og langalgengast leiðin til þess að kæla vélbúnað er að nota kæliviftur. Kælivifta sem bilar þýðir hækkun á hita vélbúnaðar sem síðan getur valdið óstöðugleika og jafnvel á endanum eyðilagt vélbúnað. Það er því klárt að kæliviftur eru einhver mikilvægasti hluti vélbúnaðar, en þessu er ótrúlega auðvelt að gleyma.

Mín fyrstu kynni af vatnskælingu var árið 2003 þegar ég eignaðist Waterchill vatnskælingarsett frá danska fyrirtækinu Asetek. Þessi sett voru bylting á sínum tíma því þau komu fullbúinn frá framleiðanda, með öllu sem til þurfti, leiðslum, festingum, dælu, vatnsforðabúri, koparblokk fyrir örgjörva, kubbasett og skjákort. Einungis þurfti að setja kerfið saman í tölvukassanum og bæta á vatni. Það skal varlega farið í það hér að tala um að "einungis" hafi þurft að setja það saman, því að koma slíkri vatnskælingu fyrir í tölvukassa er ekki fyrir hvern sem er.

Kæligeta tölvukassa er mjög mikilvæg en tölvukassa ekki einungis ætlað að hylja innihaldið, heldur einnig að halda því svölu. Nútíma tölvubúnaður gefur frá sér töluverðan hita og eins annar rafeindabúnaður hefur takmarkað þol gegn honum. Viðvarandi of mikill hiti dregur úr endingu vélbúnaðar og veldur óstöðugleika. Þetta er ein ástæða sem gerir það mikilvægt að vanda valið á tölvukassa.

Intel Core i7 980X fyrsti sexkjarna örgjörvinn er kominn á markað. Þetta er fyrsti örgjörvinn framleiddur með 32nm tækni, keyrir á 3.33GHz og getur unnið með 12 þræði í einu með hjálp HT (Hyper-Threading). Verðið mun vera í kringum 1000 USD eða það sama og á áður öflugasta örgjörvanum frá Intel sem var Core i7 975. Hvert verðið verður hér á landi, verður tíminn að leiða í ljós, en dýr verður hann.

Í gær kom í gegnum windows update ný uppfærsla, sem er einstök og á sér forsögu. Evrópusambandið hefur skikkað MS til þess að bjóða upp á uppsetningu annarra vafra en Internet Explorer í uppsetningu á Windows. Þetta mun Evrópusambandið hafa gert til þess að tryggja eðlilega samkeppni vafraframleiðenda. Uppfærslan sem kom í gær er fyrir stýrikerfi sem þegar hafa verið sett upp, en eftir endurræsingu kemur upp valgluggi þar sem hægt er að velja að setja upp 11 vafra aðra en IE8.

Sumum lesendum tech.is finnist það eflaust óþarfi að skrifa einhverjar sérstakar leiðbeiningar um það hvernig setja eigi upp Windows 7, en það hafa ekki allir sömu færni. Þessar leiðbeiningar duga vonandi til þess að tiltölulega óvönum tölvunotanda takist að setja upp Windows 7 á sómasamlegan hátt. Windows 7 er einfalt í uppsetningu enda hefur Microsoft haft þó nokkur ár til þess að þróa uppsetningarferli Windows. Samt sem áður er auðvelt fyrir óvanan að klúðra uppsetningu á stýrikerfinu sem síðan getur leitt til vandamála.
Nýjasta af spjallinu





























